Vatnsstígur 12

Skjalnúmer : 5235

3473. fundur 1999
Vatnsstígur 12, Bílskúr
Sótt er um leyfi til þess að byggja bílgeymslu úr steinsteypu, timbri og bárujárni á suðausturhluta lóðarinnar nr. 12 við Vatnsstíg.
Stærð: Bílgeymsla 42,8 ferm., 129,9 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 3.248
Umsögn Borgarskipulags dags. 18. febrúar 1999 fylgir erindinu.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Einar Daníel Bragason vék af fundi við afgreiðslu málsins.


3471. fundur 1999
Vatnsstígur 12, Bílskúr
Sótt er um leyfi til þess að byggja bílskúr úr timbri og bárujárni á suðausturhluta lóðarinnar nr. 12 við Vatnsstíg.
Stærð: Bílaskúr 42,8 ferm., 129,9 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 3.248
Umsögn Borgarskipulags dags. 18. febrúar 1999 fylgir erindinu.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Einar D. Bragason vék af fundi við umfjöllun málsins.


3466. fundur 1999
Vatnsstígur 12, Bílskúr
Sótt er um leyfi til þess að byggja bílskúr úr timbri og bárujárni á suðausturhluta lóðarinnar nr. 12 við Vatnsstíg.
Stærð: Bílageymsla 41,4 ferm., 125,6 rúmm.
Gjald kr. 2.500 + 3.140
Frestað.
Málinu vísað til skipulags- og umferðarnefndar til ákvörðunar um grenndarkynningu.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Einar Daníel Bragason vék af fundi við afgreiðslu málsins.


1. fundur 1999
Vatnsstígur 12, bílskúr
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 15.12.98 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 7. s.m. um bílskúr að Vatnsstíg 12.


26. fundur 1998
Vatnsstígur 12, bílskúr
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju bréf Sveins Ívarssonar arkitekts, dags. 20.09.98, varðandi byggingu bílskúrs á lóðinni Vatnsstíg 12, samkv. uppdr. sama, dags. 15.9.98 br. og mótt. 9. okt. 1998. Einnig lögð fram umsögn borgarminjavarðar dags. 2.10.98, umsögn Húsafriðunarnefndar, dags. 2.10.98 ásamt umsögnum Borgarskipulags, dags. 09.10.1998 og 02.12.98 og nýjum uppdr. mótt. 02.12.98. Ennfremur lögð fram athugasemdabréf Einars Bragasonar f.h. MÍR, mótt. 16.11.98 og Þormóðs Sveinssonar f.h. eigenda Lindargötu 42a. Málið var í kynningu frá 19. okt. til 16. nóv. 1998.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir umsögn Borgarskipulags um athugasemdir sem bárust í kjölfar kynningar. Ennfremur samþykkir nefndin tillögu að byggingu bílskúrs á lóðinni, dags. 2.12.1998.

22. fundur 1998
Vatnsstígur 12, bílskúr
Lagt fram bréf Sveins Ívarssonar arkitekts, dags. 20.09.98, varðandi byggingu bílskúrs á lóðinni Vatnsstíg 12, samkv. uppdr. sama, dags. 15.9.98 br. og mótt. 9. okt. 1998. Einnig lögð fram umsögn borgarminjavarðar dags. 2.10.98. og húsafriðunarnefndar dags. 2.10.98 og umsögn Borgarskipulags dags. 9.10.1998.
Samþykkt að kynna erindið fyrir hagsmunaaðilum að Vatnsstíg 9a og 10a og Lindargötu 40, 42 og 42a.