Flugvöllur 106930 / Hlíðarfótur

Verknúmer : BN035317

120. fundur 2008
Flugvöllur 106930 / Hlíðarfótur, Bréf flugskýli 9
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 14. desember 2007 vegna samþykktar borgarráðs 13. s.m. á bréfi borgarlögmanns frá 10. s.m. um að Norðurflug ehf. fjarlægi flugskýli nr. 9 á Reykjavíkurflugvelli.


112. fundur 2007
Flugvöllur 106930 / Hlíðarfótur, Bréf flugskýli 9
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 22. október 2007 vegna málefna flugskýlis nr. 9 á Reykjavíkurflugvelli. Einnig lagt fram bréf borgarlögmanns, dags. 19. sept. 2007 ásamt bréfi Sigurðar G. Guðjónssonar hrl., dags. 5. júlí 2007.
Tillaga byggingarfulltrúa samþykkt.
Vísað til borgarráðs.


83. fundur 2007
Flugvöllur 106930 / Hlíðarfótur, Bréf flugskýli 9
Á fundi skipulagsráðs þann 6. febrúar s.l., var lagt fram bréf byggingarfulltrúa, dags. 25. janúar 2007, vegna óleyfisframkvæmda við flugskýli á Reykjavíkurflugvelli þar sem framkvæmdir eru stöðvaðar.
Einnig lögð fram tvö bréf Sigtryggs L. Kristóferssonar dags. 24. janúar 2007 f.h. Norðurflugs ehf.
Á fundi skipulagsráðs 6. febrúar s.l., láðist að bóka að málinu væri vísað til meðferðar stjórnsýslu- og starfsmannasviðs Reykjavíkur og skipulagssjóðs.

82. fundur 2007
Flugvöllur 106930 / Hlíðarfótur, Bréf flugskýli 9
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa, dags. 25. janúar 2007, vegna óleyfisframkvæmda við flugskýli á Reykjavíkurflugvelli þar sem framkvæmdir eru stöðvaðar.
Einnig lögð fram tvö bréf Sigtryggs L. Kristóferssonar dags. 24. janúar 2007 f.h. Norðurflugs ehf.
Stöðvun framkvæmda staðfest.