Fálkagata 4

Verknúmer : BN033920

55. fundur 2006
Fálkagata 4, tillaga um aðgerðir
Lagt fram bréf lögfræði og stjórnsýslu dags. 4. maí s.l.
Jafnframt lögð fram tillaga byggingarfulltrúa til aðgerða vegna framkvæmda á lóðinni nr. 4 við Fálkagötu.
Bréf lóðarhafa Suðurgötu 100 dags. 17. maí 2006 fylgir erindinu.
Framlögð tillaga byggingarfulltrúa samþykkt.
Vísað til borgarráðs.


53. fundur 2006
Fálkagata 4, tillaga um aðgerðir
Lagt fram bréf lögfræði og stjórnsýslu dags. 4. maí s.l.
Jafnframt lögð fram tillaga byggingarfulltrúa til aðgerða vegna framkvæmda á lóðinni nr. 4 við Fálkagötu.
Samþykkt að kynna tillögu byggingarfulltrúa fyrir málsaðilum. Jafnframt er aðilum veittur 10 daga frestur til að gera athugasemdir við tillögu byggingarfulltrúa frá móttöku bréfs þar að lútandi.