Betri Reykjavík
Verknúmer : US140116
70. fundur 2014
Betri Reykjavík, sebramála allar gangbrautir strax
Lögð fram fjórða efsta hugmynd maímánaðar úr flokknum samgöngur "sebramála allar gangbrautir strax" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 30. maí 2014 ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 11. júní 2014.
Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 11. júní 2014 samþykkt.