Umhverfis- og skipulagsráð
Verknúmer : US140068
63. fundur 2014
Umhverfis- og skipulagsráð, Reykjavíkurráð ungmenna, tillaga um að Reykjavíkurborg borgi lýsingu á grunnskólalóðum
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 28. mars 2014 vegna samþykktar borgarstjórnar og Reykjavíkurráðs ungmenna um að vísa svohljóðandi tillögu Kára Arnarssonar frá ungmennaráði Laugardals og Háaleitis um að Reykjavíkurborg borgi lýsingu á grunnskólalóðum til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.
Samþykkt að boða fulltrúa Reykjavíkurráðs ungmenna Kára Arnarson á fund umhverfis- og skipulagsráðs til að kynna framlagða tillögu.