Lýsing á göngustíg við Látrasel

Verknúmer : US130305

49. fundur 2014
Lýsing á göngustíg við Látrasel, tillaga frá borgarráði
Á fundi borgarráðs 10. október 2013 var lögð fram eftirfarandi tillaga:
Borgarráð beinir því til skrifstofu framkvæmda og viðhalds að lýsing verði bætt á göngu- og hjólreiðastíg sem tengir Látrasel við stíg sem liggur á mörkum Reykjavíkur og Kópavogs. Einnig þarf að ljúka við að tengja stíg sem liggur frá Lambaseli að umræddum stíg. Þá þarf að tengja göngustíg sem liggur á milli Geitastekks og Stekkjarbakka. Einnig lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 30. október 2013. Jafnframt er lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 16. desember 2013 það sem óskað er eftir að umhverfi- og skipulagsráð taki tillöguna fyrir og afgreiði hana.



42. fundur 2013
Lýsing á göngustíg við Látrasel, tillaga frá borgarráði
Á fundi borgarráðs 10. október 2013 var lögð fram eftirfarandi tillaga:
Borgarráð beinir því til skrifstofu framkvæmda og viðhalds að lýsing verði bætt á göngu- og hjólreiðastíg sem tengir Látrasel við stíg sem liggur á mörkum Reykjavíkur og Kópavogs. Einnig þarf að ljúka við að tengja stíg sem liggur frá Lambaseli að umræddum stíg. Þá þarf að tengja göngustíg sem liggur á milli Geitastekks og Stekkjarbakka. Einnig lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 30. október 2013.

Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 30. október 2013 samþykkt.