Sturlugata 5
Verknúmer : SN160119
139. fundur 2016
Sturlugata 5, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Landmótunar sf., mótt. 15. febrúar 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands vegna lóðarinnar nr. 5 við Sturlugötu. Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar til norðurs og suðurs og fella niður hringtorg sem sýnt er á mörkum Sæmundargötu og Sturlugötu, samkvæmt uppdr. Landmótunar sf., dags. 14. janúar 2016.
Björn Ingi Edvardsson verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.
574. fundur 2016
Sturlugata 5, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Landmótunar sf., mótt. 15. febrúar 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands vegna lóðarinnar nr. 5 við Sturlugötu. Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar til norðurs og fella niður hringtorg sem sýnt er á mörkum Sæmundargötu og Sturlugötu, samkvæmt uppdr. Landmótunar sf., dags. 14. janúar 2016.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.5 í Gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014 vegna kostnaðar við skipulagsvinnu o.fl.