Vogabyggð
Verknúmer : SN140317
80. fundur 2014
Vogabyggð, drög að lýsingu vegna aðalskipulagsbreytingar
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 4. júlí 2014 um samþykkt borgarráðs 3. júlí 2014 varðandi breytingu á Aðalskipulagi vegna Vogabyggðar.
496. fundur 2014
Vogabyggð, drög að lýsingu vegna aðalskipulagsbreytingar
Lögð fram drög að lýsingu umhverfis- og skipulagssviðs dags. 23. júní 2014 vegna breytingar á aðalskipulagi Vogabyggðar.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.
70. fundur 2014
Vogabyggð, drög að lýsingu vegna aðalskipulagsbreytingar
Lögð fram drög að lýsingu umhverfis- og skipulagssviðs dags. 23. júní 2014 vegna breytingar á aðalskipulagi vegna Vogabyggðar.
Lýsing samþykkt til kynningar og umsagnar með vísan til 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 6. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Samþykkt að vísa lýsingunni til umsagnar Skipulagsstofnunar, Umhverfisstofnunar, Vegagerðarinnar, Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur og hverfisráðs Laugardals.
Lýsingin verður aðgengileg á vef umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur.
Vísað til borgarráðs.