Barónsstígur, Sundhöllin
Verknúmer : SN130179
57. fundur 2014
Barónsstígur, Sundhöllin, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 20. febrúar 2014 um samþykkt borgarráðs s.d. varðandi auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðar Sundhallar við Barónsstíg 43.
54. fundur 2014
Barónsstígur, Sundhöllin, breyting á deiliskipulagi
Á fundi skipulagsfulltrúa 31. janúar 2014 var lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðarinnar nr. 43 við Barónsstíg. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit og aukningu á byggingarmagni, samkvæmt deiliskipulagsuppdr. Hornsteina arkitekta ehf. dags. 6. febrúar 2014. Einnig er lagður fram skýringaruppdráttur dags. 6. febrúar 2014.
Margrét Þormar verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, sbr. 43. gr. skipulagslaga. .
Vísað til borgarráðs.
478. fundur 2014
Barónsstígur, Sundhöllin, breyting á deiliskipulagi
Á fundi skipulagsfulltrúa 31. janúar 2014 var lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðarinnar nr. 43 við Barónsstíg. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit og aukningu á byggingarmagni, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta ehf. dags. 23. janúar 2014. Tillögunni var frestað og er nú lögð fram að nýju.
Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs
477. fundur 2014
Barónsstígur, Sundhöllin, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðarinnar nr. 43 við Barónsstíg. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit og aukningu á byggingarmagni, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta ehf. dags. 23. janúar 2014.
Frestað
45. fundur 2013
Barónsstígur, Sundhöllin, breyting á deiliskipulagi
Kynnt tillaga VA arkitekta sem valin var til fyrstu verðlauna úr opinni samkeppni vegna viðbyggingar á Sundhöll Reykjavíkur.
uppdr. 1
uppdr. 2
Nikulás Úlfar Másson skrifstofustjóri Rúnar Gunnarsson deildarstjóri taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Ólafur Axelsson frá VA arkitektum kynnir
14. fundur 2013
Barónsstígur, Sundhöllin, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram forsögn að opinni samkeppni vegna viðbyggingar á Sundhöll Reykjavíkur.
Rúnar Gunnarsson verkefnisstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Páll Hjaltason vék af fundi kl. 14:50, Hjálmar Sveinsson tók við stjórn fundarins.
Samþykkt.
13. fundur 2013
Barónsstígur, Sundhöllin, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram drög að forsögn að opinni samkeppni vegna viðbyggingar á Sundhöll Reykjavíkur.
Rúnar Gunnarsson tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Frestað