Norðlingaholt

Verknúmer : SN100423

235. fundur 2011
Norðlingaholt, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 17. febrúar 2011 vegna samþykktar borgarráðs frá 10. febrúar 2011 um breytt deiliskipulag Norrðlingaholts.

232. fundur 2011
Norðlingaholt, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni auglýsingu er lagður fram að nýju uppdráttur Skipulags- og byggingarsviðs dags 23. nóvember 2010 varðandi breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulagsins er breytt til vesturs vegna nýs deiliskipulags milli Suður Seláss og Norðlingaholts. Auglýsingin stóð yfir frá 15. desember 2010 til og með 28. janúar 2011. Engar athugasemdir bárust.

Auglýst tillaga að deiliskipulagi samþykkt.
Vísað til borgarráðs.

336. fundur 2011
Norðlingaholt, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni auglýsingu er lagður fram að nýju uppdráttur Skipulags- og byggingarsviðs dags 23. nóvember 2010 varðandi breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulagsins er breytt til vesturs vegna nýs deiliskipulags milli Suður Seláss og Norðlingaholts. Auglýsingin stóð yfir frá 15. desember 2010 til og með 28. janúar 2011. Engar athugasemdir bárust. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 3. febrúar 2011.
Vísað til skipulagsráðs.

230. fundur 2011
Norðlingaholt, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 9. desember 2010 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi fyrir Norðlingaholt vegna nýrrar afmörkunar deiliskipulags.

226. fundur 2010
Norðlingaholt, breyting á deiliskipulagi
Lagður fram uppdráttur Skipulags- og byggingarsviðs dags 23. nóvember 2010 varðandi breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulagsins er breytt til vesturs vegna nýs deiliskipulags milli Suður Seláss og Norðlingaholts.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.
Jafnframt var samþykkt að senda hagsmunaðilum á svæðinu bréf þar sem vakin er athygli á auglýsingunni.

328. fundur 2010