Slippa- og Ellingsenreitur
Verknúmer : SN100336
218. fundur 2010
Slippa- og Ellingsenreitur, breyting á deiliskipulagi vegna reits R16
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 23. september 2010 um samþykki borgarráðs s.d. um auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Slippa- og Ellingsenreits. Flutningur á saltfiskhúsinu Sólfelli á reit R16.
318. fundur 2010
Slippa- og Ellingsenreitur, breyting á deiliskipulagi vegna reits R16
Lagt fram erindi Faxaflóahafna dags. 17. september 2010 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits Slippa- og Ellingsenreits vegna reits R16 samkvæmt uppdrætti dags. 16. september 2010. Í breytingunni felst að á lóðina verður flutt 20. aldar hús.
Vísað til skipulagsráðs.
216. fundur 2010
Slippa- og Ellingsenreitur, breyting á deiliskipulagi vegna reits R16
Lagt fram erindi Faxaflóahafna dags. 17. september 2010 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits Slippa- og Ellingsenreits vegna reits R16 samkvæmt uppdrætti dags. 16. september 2010. Í breytingunni felst að á lóðina verður flutt 20. aldar hús, fiskþurrkunarhúsið Sólfell.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.
Jafnframt er samþykkt að vísa tillögunni til kynningar hjá menningar- og ferðamálaráði og til umsagnar hjá Minjasafni Reykjavíkur.