Háskólinn í Reykjavík
Verknúmer : SN070662
112. fundur 2007
Háskólinn í Reykjavík, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Landmótunar og Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar, dags. 19. október 2007, að breytingu á deiliskipulagi Háskólans í Reykjavík. Í breytingunni felst að svæðaskiptingu í svæði 1a, 1b, 1c og 2 er breytt og svæði 1a, 1b og 1c er skipt upp í 10 misstórar lóðir. Reitur 2 þar sem skipulagi er frestað er óbreyttur.
Samþykkt með vísan til 12. gr. samþykktar um skipulagsráð. Ekki talin þörf á grenndarkynningu þar sem breytingin varðar einungis hagsmuni lóðarhafa og Reykjavíkurborgar.