Hátún 2
Verknúmer : SN070585
116. fundur 2007
Hátún 2, lóðarleigusamningur
Lagt fram erindi Hvítasunnukirkjunnar dags. 20. september 2007 varðandi lóðarleigusamning og afmörkun lóðarinnar nr. 2 við Hátún. Einnig er lögð fram tillaga Framkvæmdasviðs dags. 14. nóvember 2007 að afmörkun lóðarinnar.
Afmörkun lóðar samþykkt með vísan til d-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.
188. fundur 2007
Hátún 2, lóðarleigusamningur
Á fundi skipulagsstjóra 28. september 2007 var lagt fram erindi Hvítasunnukirkjunnar dags. 20. september 2007 varðandi lóðarleigusamning við söfnuðinn vegna lóðarinnir nr. 2 við Hátún. Erindinu var vísað til umsagnar Framkvæmdasviðs vegna afmörkunar lóðarinnar og er nú lögð fram tillaga Framkvæmdasviðs dags. 14. nóvember 2007 að afmörkun lóðarinnar.
Vísað til skipulagsráðs.
181. fundur 2007
Hátún 2, lóðarleigusamningur
Lagt fram erindi Hvítasunnukirkjunnar dags. 20. september 2007 varðandi lóðarleigusamning við söfnuðinn vegna lóðarinnir nr. 2 við Hátún.
Vísað til umsagnar Framkvæmdasviðs vegna afmörkunar lóðarinnar.