Fossaleynir 1

Verknúmer : SN060595

91. fundur 2007
Fossaleynir 1, breyting á deiliskipulagi
Á fundi skipulagsfulltrúa 16. apríl 2007 var lögð fram umsókn Alark f.h. Nýsis, dags. 26. október 2006, um breytingu á deiliskipulagi lóðar nr. 1 við Fossaleyni, skv. uppdrætti, dags. 30. ágúst 2006. Einnig lögð fram tillaga Alark mótt. 15. apríl 2007. Í tillögunni er gert ráð fyrir að fella niður bílastæði norðan við Egilshöll og breytingu á innra fyrirkomulagi íþróttasvæðisins. Erindinu var vísað til umsagnar ÍTR og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn ÍTR. dags. 18. apríl 2007.
Samþykkt að auglýsa framlagaða tillögu að breytingu á deiliskipulagi.
Vísað til borgarráðs.


160. fundur 2007
Fossaleynir 1, breyting á deiliskipulagi
Á fundi skipulagsfulltrúa 16. apríl 2007 var lögð fram umsókn Alark f.h. Nýsis, dags. 26.10.06, um breytingu á deiliskipulagi lóðar nr. 1 við Fossaleyni, skv. uppdrætti, dags. 30.08.06. Einnig lögð fram tillaga Alark mótt. 15.04.07. Í tillögunni er gert ráð fyrir að fella niður bílastæði norðan við Egilshöll og breytingu á innra fyrirkomulagi íþróttasvæðisins. Erindinu var vísað til umsagnar ÍTR og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn ÍTR. dags. 18. apríl 2007.
Vísað til skipulagsráðs.

159. fundur 2007
Fossaleynir 1, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Alark f.h. Nýsis, dags. 26.10.06, um breytingu á deiliskipulagi lóðar nr. 1 við Fossaleyni, skv. uppdrætti, dags. 30.08.06. Einnig lögð fram tillaga Alark mótt. 15.04.07.
Tillögu Alark dags. 15.04.07 vísað til umsagnar ÍTR.

157. fundur 2007
Fossaleynir 1, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Alark f.h. Nýsis, dags. 26.10.06, um breytingu á deiliskipulagi lóðar nr. 1 við Fossaleyni, skv. uppdrætti, dags. 30.08.06. Einnig lögð fram tillaga Alark mótt. 27.10.06.
Á fundi skipulagsfulltrúa þann 27. október sl. var óskað eftir umsögn ÍTR um málið. Sú beiðni er ítrekuð og er óskað eftir því að umsögnin liggi fyrir í síðasta lagi þann 10. apríl.

138. fundur 2006
Fossaleynir 1, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Alark f.h. Nýsis, dags. 26.10.06, um breytingu á deiliskipulagi lóðar nr. 1 við Fossaleyni, skv. uppdrætti, dags. 30.08.06. Einnig lögð fram tillaga Alark mótt. 27.10.06.
Vísað til umsagnar ÍTR.

132. fundur 2006
Fossaleynir 1, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram fyrirspurn Jakobs Líndal f.h. Nýsi hf., dags. 14.09.06, varðandi breytt fyrirkomulag á lóðinni nr. 1 við Fossaleyni ætlað undir sparkvelli, tennisvöll og gervigrasvöll norðan við Egilshöll.
Vísað til umsagnar umhverfisstjóra.