Langholtsvegur 109-115
Verknúmer : SN050159
71. fundur 2006
Langholtsvegur 109-115, kæra, umsögn
Lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 26. október 2006, vegna kæru húsfélagsins að Langholtsvegi 109-111, á breytingu á deiliskipulagi Langholtsvegar 113 , sem samþykkt var í skipulags- og byggingarnefnd þann 22. desember 2004.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.
10. fundur 2005
Langholtsvegur 109-115, kæra, umsögn
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 15. mars 2005, ásamt kæru, dags. 28. janúar 2005, þar sem kærð er samþykkt skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur frá 22. desember 2004, um breytingu á deiliskipulagi að Langholtsvegi 113.
Málinu vísað til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu.