Grjótháls 8
Skjalnúmer : 9734
22. fundur 1999
Grjótháls 8, nýbygging
Lagt fram bréf Hauks Harðarsonar arkitekts, dags. 12. ágúst 99, varðandi húsbyggingar á lóð Skeljungs að Grjóthálsi 8, samkv. uppdr. Teiknistofu Hauks Harðarsonar, dags. 12. ágúst ´99. Einnig lögð fram umsögn borgarverkfræðings, dags. 20.10.99.
Synjað með vísan til umsagnar borgarverkfræðings.
2. fundur 1999
Grjótháls 8, auglýsingaskilti
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 09.10.98, varðandi umsókn Skeljungs h.f. um að reisa auglýsingaskilti á lóðinni nr. 8 við Grjótháls, samkv. uppdr. Hauks Harðarsonar arkitekts, dags. 30.09.98. Einnig lögð fram athugasemdabréf Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson hf, dags. 25.11.98, Grjótháls ehf, dags. 02.12.98, Bifreiða og Landbúnaðarvéla hf, dags. 03.12.98 og Össurs hf, dags. 07.12.98. Málið var í kynningu frá 27. okt. til 27. nóv. 1998. Einnig lögð fram samantekt Borgarskipulags, dags. 20. janúar 1999.
Með vísan til framlagðra athugasemda og samþykktar um skilti í lögsögu Reykjavíkur fellst skipulags- og umferðarnefnd ekki á erindið. (Inga Jóna Þórðardóttir og Júlíus Vífill Ingvarssona sátu hjá).
23. fundur 1998
Grjótháls 8, auglýsingaskilti
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 09.10.98, varðandi umsókn Skeljungs h.f. um að reisa auglýsingaskilti á lóðinni nr. 8 við Grjótháls, samkv. uppdr. Hauks Harðarsonar arkitekts, dags. 30.09.98.
Samþykkt að kynna erindið fyrir hagsmunaaðilum að Grjóthálsi nr. 7, 9 og 11.