Sundabraut

Skjalnúmer : 8644

1. fundur 2000
Sundabraut,
Lögð fram til kynningar bréf Verkefnisstjórnar Sundabrautar dags. 8.10.99 og viðbótarathuganir Línuhönnunar dags. í okt. 1999.


26. fundur 1998
Sundabraut,
Fulltrúar vinnuhóps vegna Sundabrautar kynntu stöðu við vinnu hópsins.

6. fundur 1998
Sundabraut,
Lagt fram bréf borgarverkfræðings, dags. 04.03.98, varðandi kynningu á undirbúningsvinnu Sundabrautar.
Ríkharður Kristjánsson, Línuhönnun, Steve Christer, Studio Granda og borgarverkfræðingur kynntu.

24. fundur 1997
Sundabraut,
Lögð fram til kynningar áfangaskýrsla 1 að þverun Kleppsvíkur, unnin af Vegagerðinni og borgarverkfræðingi, dags. í okt. 1997.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að fulltrúi Borgarskipulags taki sæti í vinnuhópi borgarverkfræðings og Vegagerðarinnar um Sundabraut.