Gunnunes

Skjalnúmer : 8422

19. fundur 1999
Gunnunes, vatnslögn
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 31. ágúst 1999 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 30. s.m. um vatnslögn frá Staðahverfi í Gunnunes. Jafnframt var lagt fram bréf garðyrkjustjóra frá 30. s.m., sbr. samþykkt heilbrigðis- og umhverfisnefndar 30 s.m. um málið.


17. fundur 1999
Gunnunes, vatnslögn
Lagt fram bréf Vatnsveitu Reykjavíkur, dags. 17.08.99 varðandi lagningu vatnslagnar frá Staðahverfi í Gunnunes skv. meðf. uppdr. Vatnsveitunnar ódags. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags dags. 19.8.99.
Samþykkt