Bjargargata 1
Verknúmer : BN058185
1084. fundur 2020
Bjargargata 1, Reyndarteikningar - kjallara
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN051881 þannig að burðarveggjum og súlum hefur verið bætt við, hurðum fjölgað og staðsetningum breytt, aðalstigi hefur verðið færður, brunastúka stækkuð, bætt hefur verið við tæknirými, útblástursrými ásamt skolpdælingarrými og sorplyftur hafa verið færðar til í kjallara verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr.1 við Bjargargötu.
Erindi fylgir greinargerð hönnuða dags. 10. september 2020 og yfirlit breytinga á A3 afriti af óstimpluðum teikningum.
Gjald kr. 11.200
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.