Arnarhlíð 2

Verknúmer : BN058183

1084. fundur 2020
Arnarhlíð 2, Hlíðarendi 1-7 Breytt BN048979 - texti í byggingarlýsingu
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN048979 þannig að texti um frágang þaka er breytt í byggingarlýsingu fjölbýlishússins að Hlíðarenda 1-7 á lóð nr. 2 við Arnarhlíð.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 14. september 2020, bréf hönnuðar dags. 17. september 2020 og yfirlit breytinga á uppdrætti A102 samþykktum 21. janúar 2020.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.