Skógarsel 12
Verknúmer : BN058130
1088. fundur 2020
Skógarsel 12, Mhl.06 - Íþróttahús fyrir boltaíþróttir
Sótt er um leyfi til að byggja íþróttahús fyrir boltaíþróttir, þar sem gert er ráð fyrir 800 manns í útdraganlegum áhorfendabekkjum og möguleika á 1000 manna borðhaldi í húsi á lóð nr. 12 við Skógarsel.
Erindi fylgir hæðablað dags. janúar 2006 og mæliblað dags. 24. janúar 2018, greinagerð hönnuðar dags. 29. september 2020, útreikningar á varmatapi dags. 29. september 2020, hljóðvistarskýrsla dags. 30. september 2020, skýrsla um brunahönnun dags. 1. október 2020 og 12. október 2020.
Gjald kr. 11.200
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.
1087. fundur 2020
Skógarsel 12, Mhl.06 - Íþróttahús fyrir boltaíþróttir
Sótt er um leyfi til að byggja íþróttahús fyrir boltaíþróttir, einnig er gert ráð fyrir 800 manns í útdraganlegum áhorfendabekkjum og möguleika á 1000 manna borðhaldi í húsinu á lóð nr. 12 við Skógarsel.
Erindi fylgir hæðablað dags. janúar 2006 og mæliblað dags. 24. janúar 2018, greinagerð hönnuðar dags. 29. september 2020, útreikningar á varmatapi dags. 29. september 2020, hljóðvistarskýrsla dags. 30. september 2020, skýrsla um brunahönnun dags. 1. október 2020 og 12. október 2020.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Vísað til athugasemda.
1086. fundur 2020
Skógarsel 12, Mhl.06 - Íþróttahús fyrir boltaíþróttir
Sótt er um leyfi til að byggja íþróttahús fyrir boltaíþróttir, einnig er gert ráð fyrir 800 manns í útdraganlegum áhorfendabekkjum og möguleika á 1000 manna borðhaldi í húsinu á lóð nr. 12 við Skógarsel.
Erindi fylgir hæðablað dags. janúar 2006 og mæliblað dags. 24. janúar 2018, greinagerð hönnuðar dags. 29. september 2020, útreikningar á varmatapi dags. 29. september 2020, hljóðvistarskýrsla dags. 30. september 2020 og skýrsla um brunahönnun dags. 1. október 2020.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Vísað til athugasemda.
1082. fundur 2020
Skógarsel 12, Mhl.06 - Íþróttahús fyrir boltaíþróttir
Sótt er um leyfi til að byggja íþróttahús fyrir boltaíþróttir, einnig er gert ráð fyrir 800 manns í útdraganlegum áhorfendabekkjum og möguleika á 1000 manna borðhaldi í húsinu á lóð nr. 12 við Skógarsel.
Erindi fylgir hæðablað dags. janúar 2006 og mæliblað dags. 24. janúar 2018.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Vísað til athugasemda.