Grensásvegur 16A
Verknúmer : BN058008
1080. fundur 2020
Grensásvegur 16A, Síðumúli 39 - Breyting v/lokaúttektar - BN052543
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN052543, vegna lokaúttektar, þannig að svalir 0115 og 0116 eru stækkaðar, einnig er sótt um breytingar á innra skipulagi og á þakgarði 0218 í mhl.02 í húsi nr. 39 við Síðumúla á lóð nr. 16A við Grensásveg.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 29. júlí 2020 og yfirlit breytinga. Einnig bréf hönnuðar dags. 20. ágúst 2020 og 24. ágúst 2020.
Gjald kr. 11.200
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
1079. fundur 2020
Grensásvegur 16A, Síðumúli 39 - Breyting v/lokaúttektar - BN052543
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN052543, vegna lokaúttektar, þannig að svalir 0115 og 0116 eru stækkaðar, einnig er sótt um breytingar á innra skipulagi og á þakgarði 0218 í mhl.02 í húsi nr. 39 við Síðumúla á lóð nr. 16A við Grensásveg.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 29. júlí 2020 og yfirlit breytinga.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Vísað til athugasemda.