Skólavörðustígur 18
Verknúmer : BN057739
1072. fundur 2020
Skólavörðustígur 18, Breytingar - BN051783
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051783 vegna lokaúttektar, m. a. falla út svalir á 1. hæð, salarhæðir eru leiðréttar ásamt minni háttar breytingu á innveggjum á 1. hæð íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 18 við Skólavörðustíg.
Erindi fylgir A3 sett með yfirliti yfir breytingar.
Breyttar stærðir:
Stækkun: 5,5 ferm.
Minnkun: 6,9 rúmm.
Eftir breytingu: 758,4 ferm., 2.438,1 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.