Haukahlíð 5
Verknúmer : BN057599
1068. fundur 2020
Haukahlíð 5, Mhl.05 - Breytt erindi BN053330 - brunavarnir o.fl.
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055330 sem felst í því að breyta fyrirkomulagi brunavarna við bílgeymslur í kjallara, fjarlægja vindföng á 1. hæð og bæta við arni í íbúð 0504 í fjölbýlishúsinu við Hlíðarfót 11-15, mhl. 05, á lóð nr. 5 við Haukahlíð.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á A3 afriti af samþykktum teikningum.
Gjald kr. 11.200
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
1066. fundur 2020
Haukahlíð 5, Mhl.05 - Breytt erindi BN053330 - brunavarnir o.fl.
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055330 sem felst í því að breyta fyrirkomulagi brunavarna við bílgeymslur í kjallara, fjarlægja vindföng á 1. hæð og bæta við arni í íbúð 0504 í fjölbýlishúsinu við Hlíðarfót 11-15, mhl. 05, á lóð nr. 5 við Haukahlíð.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á A3 afriti af samþykktum teikningum.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits.