Blikastaðavegur 2-8

Verknúmer : BN057564

1068. fundur 2020
Blikastaðavegur 2-8, Breytingar á byggingaleyfi
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN055601, þannig að lögð er inn skráningartafla fyrir olíutanka og olíuskilju, sem skráðir verða sem mhl 03, 04 og 05, stigi á norðurhlið er fjarlægður og óráðstafað rými verður hluti rafstöðvar í húsi á lóð nr. 2-8 við Blikastaðaveg.
Stærðir á olíutank og olíuskilju er: mhl. 03 er: 14,8 ferm., 43,2 rúmm.
Mhl. 04 er : 14,8ferm., 43,2 rúmm. og mhl. 05 olíuskilja 2,4 ferm. 2,2 rúmm.
Gjald kr. 11.200


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


1066. fundur 2020
Blikastaðavegur 2-8, Breytingar á byggingaleyfi
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN055601, þannig að lögð er inn skráningartafla fyrir olíutanka, sem skráðir verða sem mhl 03, stigi á norðurhlið er fjarlægður og óráðstafað rými verður hluti rafstöðvar í húsi á lóð nr. 2-8 við Blikastaðaveg.
Stærðir á olíutanka er: 29,6 ferm., 86,2 rúmm.
Gjald kr. 11.200


Frestað.
Vísað til athugasemda.


1065. fundur 2020
Blikastaðavegur 2-8, Breytingar á byggingaleyfi
Sótt er um leyfi til að breyta samþykktu erindi, BN055601, þannig að lögð er inn skráningartafla fyrir olíutanka, sem skráðir verða sem mhl 03, stigi á norðurhlið er fjarlægður og óráðstafað rými verður hluti rafstöðvar í húsi á lóð nr. 2-8 við Blikastaðaveg.
Stærðir á olíutanka er: 29,6 ferm., 86,2 rúmm.
Gjald kr. 11.200


Frestað.
Lagfæra skráningu.