Suðurhlíð 9
Verknúmer : BN056521
1031. fundur 2019
Suðurhlíð 9, Færanlegar kennslustofur - frá Dalskóla
Sótt er um leyfi til að setja fjórar færanlegar kennslustofur auk tengiganga niður við Klettaskóla á lóð nr. 9 við Suðurhlíð.
(Stofurnar koma frá Dalskóla; nr. K97-E, K98-E, K107-F og K108-F.
Erindi fylgir afrit af lóaðauppdrætti dags. 11. júní 1990.
Gjald kr. 11.200
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.