Austurbakki 2
Verknúmer : BN055914
1015. fundur 2019
Austurbakki 2, Breyting á brunavörnum sbr. stofnerindi BN048688.
(Tengist breytingarerindum BN055264/BN055603)
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN048688 vegna lokaúttektar þar sem brunamerkingum er breytt á 3. hæð í byggingu L 1 á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Gjald kr. 11.200
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.
1013. fundur 2019
Austurbakki 2, Breyting á brunavörnum sbr. stofnerindi BN048688.
(Tengist breytingarerindum BN055264/BN055603)
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN048688 vegna lokaúttektar þar sem breytt er bruna merkingum á 3. hæð í byggingu L 1 á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits.