Krókháls 13
Verknúmer : BN055546
1002. fundur 2018
Krókháls 13, Breyting - gluggar, tæknirými, búningsherbergi, hillukerfi og tjörn á borgarland
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN053418, þar sem gerð er grein fyrir breytingum á gluggum, tæknirými, hillukerfi og búningsherbergjum ásamt því að gerð er grein fyrir settjörn norðan við hús á lóð nr. 13 við Krókháls.
Bréf hönnuðar og ljósmyndir af hillukefi dags. 13. desember 2018 fylgja erindi.
Gjald kr. 11.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.
1001. fundur 2018
Krókháls 13, Breyting - gluggar, tæknirými, búningsherbergi, hillukerfi og tjörn á borgarland
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á erindi BN053418, þar sem gerð er grein fyrir breytingum á gluggum,tæknirými og búningsherbergjum ásamt því að gerð er grein fyrir settjörn norðan við hús á lóð nr. 13 við Krókháls.
Millipallur: XX ferm.
Gjald kr. 11.000
Frestað.
Vísað til athugasemda.