Hrísateigur 22

Verknúmer : BN054734

978. fundur 2018
Hrísateigur 22, Reyndarteikning af bílskúr v/esk
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningu af bílskúr, vegna gerðar eignaskiptasamnings í fjölbýlishúsi á lóð nr. 22 við Hrísateig.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrðaraðilar. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.