Arnarhlíð 2
Verknúmer : BN054101
958. fundur 2018
Arnarhlíð 2, Hlíðarendi 1-7 - Aðskilið byggingarleyfi
Sótt er um aðskilið byggingarleyfi fyrir uppsteypu efri og neðri bílakjallara, sjá erindi BN048979, á lóð nr. 2 við Arnarhlíð.
Gjald kr. 11.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.