Laugavegur 42
Verknúmer : BN053423
939. fundur 2017
Laugavegur 42, Breyta skrifstofurými í íbúðir
Sótt er um leyfi til að breyta tveimur skrifstofurýmum á 2. hæð í tvær íbúðir sem reknar verða sem gististaður í flokki ll - tegund g og ennfremur breyta íbúðum á 3. og 4. hæð í gististað í sama flokki og tegund fyrir alls 18-27 gesti, ásamt því að byggja svalir á 3. hæð, bæta brunavarnir og endurnýja handrið, í húsi á lóð nr. 42 við Laugaveg.
Jafnframt er erindi BN052970 dregið til baka.
Samþykki eigenda dags. 20.02.2017 fylgir erindi ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19.05.2017 við fyrirspurn SN170351 og umsögn Minjastofnunar dags. 13.07.2017.
Gjald kr. 11.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
938. fundur 2017
Laugavegur 42, Breyta skrifstofurými í íbúðir
Sótt er um leyfi til að breyta tveimur skrifstofurýmum á 2. hæð í tvær íbúðir sem reknar verða sem gististaður í flokki ll - tegund g og ennfremur breyta íbúðum á 3. og 4. hæð í gististað í sama flokki og tegund ásamt því að byggja svalir á 3. hæð, bæta brunavarnir og endurnýja handrið, í húsi á lóð nr. 42 við Laugaveg.
Samþykki eigenda dags. 20.02.2017 fylgir erindi ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19.05.2017 við fyrirspurn SN170351 og umsögn Minjastofnunar dags. 13.07.2017.
Gjald kr. 11.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.