Sólvallagata 14
Verknúmer : BN052394
912. fundur 2017
Sólvallagata 14, Færa eldhús og fl.
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051013, með því að opna milli eldhúss og bókaherbergis á 1. hæð og til að koma fyrir innkeyrsluhurð á geymslu í bakgarði einbýlishúss á lóð nr. 14 við Sólvallagötu.
Gjald kr. 11.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.