Hádegismóar 8
Verknúmer : BN051710
896. fundur 2016
Hádegismóar 8, Breyting - stækkun o.fl. - BN051207
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051207, þær helstu eru að byggt er út frá mátlínu 13 til 14 og komið fyrir millipalli, rými 0015 í húsi á lóð nr. 8 við Hádegismóa.
Uppfærð brunaskýrsla dags. í september 2016 og nýr og breyttur orkurammi dags. 23. ágúst 2016 fylgja erindi.
Stækkun frá áður samþykktu erindi: 287,9 ferm., 2800,5 rúmm
Gjald kr. 10.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.
894. fundur 2016
Hádegismóar 8, Breyting - stækkun o.fl. - BN051207
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051207, þær helstu eru að byggt er út fra mátlínu 13 til 14 og komið fyrir millipalli, rými 0015 í húsi á lóð nr. 8 við Hádegismóa.
Uppfærð brunaskýrsla dags. í september 2016 og nýr og breyttur orkurammi dags. 23.ágúst 2016 fylgja erindi.
Stækkun frá áður samþykktu erindi: XX ferm., XX rúmm
Gjald kr. 10.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.