Suðurlandsbraut 75
Verknúmer : BN050229
850. fundur 2015
Suðurlandsbraut 75, Breytingar - björgunarop, hurðargat o.fl.
Sótt er um leyfi fyrir lítils háttar innanhús breytingum sem eru að fjarlægja björgunarop á leikstofu, breyta hurðagati í vegg á leikstofu, breyta uppröðun tækja í eldhúsi og uppfæra grunnmynd skv. uppmælingu af Leikskólanum Steinahlið á lóð nr. 75 við Suðurlandsbraut.
Gjald kr. 9.823
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.