Barónsstígur 32

Verknúmer : BN046937

760. fundur 2013
Barónsstígur 32, Færanlegir tengigangar
Sótt er um leyfi til að koma fyrir tengigöngum, T-46B og T-48B með stigalyftu, sem koma frá geymslu á Stórhöfða, tengja saman og við núverandi aðliggjandi kennslustofur K-45B og K-2B við Austurbæjarskóla á lóð nr. 32 við Barónsstíg.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.