Ægisíða - Grímsstaðavör
Verknúmer : BN046606
749. fundur 2013
Ægisíða - Grímsstaðavör, Menningarskúr - stöðuleyfi
Sótt er um stöðuleyfi fyrir skúr sem hýsir listsýningar.
Fyrirhugað er að staðsetja skúrinn í Grímsstaðavör við Ægisíðu frá 30. september til 12. nóvember 2013.
Um er að ræða 20 feta gám sem breytt hefur verið í skúr.
Tölvubréf skrifstofu eigna og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar dags. 30. september 2013 fylgir erindinu. Umsögn minjasafns Reykjavíkur dags. 12. september 2013 fylgir erindinu. Framkvæmdaheimild skrifstofu rekstúrs og umhirðu borgarlands dags. 1. október 2013 fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Stöðuleyfi 30. september - 12. nóvember, samanber umsögn skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar, framkvæmdaheimild skrifstofu reksturs og umhirðu borgarlands og umsagnar Minjastofnunar Reykjavíkur dags. 12. september 2013.