Hverfisgata 28
Verknúmer : BN046590
748. fundur 2013
Hverfisgata 28, takmarkað byggingarleyfi
Óskað er eftir takmörkuðu byggingarleyfi til að taka fram- og bakhlið hússins úr húsinu þannig að hægt sé að gera upp glugga og burðarvirki, fjarlægja það sem er ónýtt og hefja jarðvinnu og jarðvegskipta undir sökkla og lagnir á lóðinni nr. 28 við Hverfisgötu. Ekki verður unnið við aðra verkþætti en hér eru nefndir sbr. erindi BN046189.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.