Pósthússtræti 11

Verknúmer : BN045932

733. fundur 2013
Pósthússtræti 11, Útiveitingar
Sótt er um leyfi fyrir afgreiðsluborði utandyra og útiveitingaaðstöðu fyrir 43 gesti á gangstétt fyrir framan Hótel Borg á lóðinni nr. 11 við Pósthússtræti.
Umsögn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 29. maí 2013 fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Allur frágangur á svæði útiveitinga er á ábyrgð umsækjanda og ber honum að sjá til þess að allt rusl sé þrifið jafnóðum og fjarlægt.


731. fundur 2013
Pósthússtræti 11, Útiveitingar
Sótt er um leyfi fyrir útiveitingaaðstöðu fyrir 43 gesti á gangstétt fyrir framan Hótel Borg á lóðinni nr. 11 við Pósthússtræti.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Vísað til umsagnar skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar.


729. fundur 2013
Pósthússtræti 11, Útiveitingar
Sótt er um leyfi fyrir útiveitingaaðstöðu á gangstétt fyrir framan hús nr. 9 (og hús nr. 11) við Pósthússtræti.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.