Skildinganes 24
Verknúmer : BN045391
715. fundur 2013
Skildinganes 24, Breyting á gluggum
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum á norðurhlið jarðhæðar og koma fyrir nýjum gluggum og garðhurð á vesturhlið jarðhæðar í húsi á lóð nr. 24 við Skildinganes. sbr. BN035139.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 13. jan. 2013 og bréf frá hönnuði ódags. fyrlgir.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
713. fundur 2013
Skildinganes 24, Breyting á gluggum
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum á norðurhlið jarðhæðar og koma fyrir nýjum gluggum og garðhurð á vesturhlið jarðhæðar í húsi á lóð nr. 24 við Skildinganes.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.