Álfheimar 74

Verknúmer : BN042711

626. fundur 2011
Álfheimar 74, innri breytingar verslun í veitingastofu
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu rýmis 0124 úr verslun í veitingastofu í fl. II og endurnýja milliloft í mhl. 01í verslunar- og þjónustuhúsinu Glæsibæ á lóð nr. 74 við Álfheima.
Meðfylgjandi er bréf framkvæmdastjóra húsfélagsins dags. 1. mars 2011
Gjald kr. 8.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.