Elliðavatnsblettur 35
Verknúmer : BN041636
590. fundur 2010
Elliðavatnsblettur 35, endurnýjun á BN039691, einnig sótt um að koma fyrir rotþró
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN039691 dags. 9. júní 2009 þar sem byggja á nýtt þak og klæða að utan með lóðréttri viðarklæðningu og koma fyrir rotþró við sumarhúsið á lóð nr. 35 við Elliðavatnsblett.
Einnig er gerð grein fyrir bátaskýli á sömu lóð.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.