Mýrargata 18
Verknúmer : BN040481
556. fundur 2009
Mýrargata 18, mæliblað
Faxaflóahafnir sf. sækja um leyfi til þess að fella lóð nr. 18 við Mýrargötu úr fasteignaskrá og sameina flatarmáli hennar óútvísuðu landi Faxaflóahafna.
Staðgr. lóðarinnar er 1.116.307, landnr. 100070. Stærð lóðar sem fella á úr skrám er 50 ferm.
Málinu fylgir bréf Faxaflóahafna sf. dags. 8. september 2009 ásamt lóðarblaði dags. 7. september 2009 og þrem fylgiskjölum A3 dags. 7. september 2009.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.