Dofraborgir 3
Verknúmer : BN039778
537. fundur 2009
Dofraborgir 3, (fsp) sólskáli
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja sólskála við suðurhlið einbýlishúss á lóð nr. 3 við Dofraborgir.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 8. maí 2009 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að fyrirspyrjandi láti vinna á eigin kostnað tillögu um breytingu á deiliskipulagi sem grenndarkynnt verður ef berst.
254. fundur 2009
Dofraborgir 3, (fsp) sólskáli
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. apríl 2009 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að byggja sólskála við suðurhlið einbýlishúss á lóð nr. 3 við Dofraborgir.
Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi þar sem gert er ráð fyrir sólskála innan lóðarinnar með þeim fyrirvara að heildarbyggingarmagn á lóðinni fari ekki yfir 200 fermetra, eins og áskilið er í gildandi deiliskipulagi.
535. fundur 2009
Dofraborgir 3, (fsp) sólskáli
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja sólskála við suðurhlið einbýlishúss á lóð nr. 3 við Dofraborgir.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.