Barmahlíð 54
Verknúmer : BN039273
517. fundur 2008
Barmahlíð 54, hlið á svalahandrið
Sótt er um leyfi til að saga úr svalahandriði og koma fyrir timburhliði á svölum 1. hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 54 við Barmahlíð.
Gjald kr. 7.300
Þar sem þegar hefur verið sagað úr umræddu handriði og vænst er byggingarleyfisumsóknar um afnot bílskúrsþaks o.fl. gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemd við að opi í svalahandriði sé lokað til bráðabirgða með timbri, enda berist byggingarleyfisumsókn um málið í heild án ástæðulauss dráttar.