Bauganes 29

Verknúmer : BN038744

501. fundur 2008
Bauganes 29, (fsp) stækkun sólstofu
Spurt er hvort leyft yrði að byggja sólstofu við einbýlishúsið á lóð nr. 29 við Bauganes.
Bréf skipulagsstjóra dags. 18. ágúst 2008 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sbr. einnig umsögn skipulagsstjóra.


221. fundur 2008
Bauganes 29, (fsp) stækkun sólstofu
Á fundi skipulagsstjóra dags. 8. ágúst 2008 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. ágúst 2008 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja sólstofu við einbýlishúsið á lóð nr. 29 við Bauganes. Erindinu var vísað til umfjöllunar í vesturteymi og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 14. ágúst 2008.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið með þeim skilyrðum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.

219. fundur 2008
Bauganes 29, (fsp) stækkun sólstofu
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. ágúst 2008 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja sólstofu við einbýlishúsið á lóð nr. 29 við Bauganes.
Vísað til umfjöllunar í vesturteymi arkitekta hjá skipulagsstjóra.

500. fundur 2008
Bauganes 29, (fsp) stækkun sólstofu
Spurt er hvort leyft yrði að byggja sólstofu við einbýlishúsið á lóð nr. 29 við Bauganes.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.