Skipasund 24
Verknúmer : BN036789
458. fundur 2007
Skipasund 24, geymslugámur
Óskað er eftir leyfi til þess að staðsetja tímabundið 20 feta gám á lóðinni nr. 24 við Skipasund, vegna viðgerða á bílgeymslu og húsi á lóðinni.
Erindinu fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 4. september 2007.
Stöðuleyfi fyrir gám á lóðinni er samþykkt til 4. febrúar 2008.