Háagerði 87

Verknúmer : BN035791

441. fundur 2007
Háagerði 87, (fsp) hækka viðbyggingu
Spurt er hvort leyft yrði að færa til núverandi kvist á suðurhlið, byggja nýjan kvist á norðurhlið og hækka viðbyggingu sem fyrir er við einbýlishúsið á lóðinni nr. 87 við Háagerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 27. apríl 2007 fylgir erindinu.
Nei.
Miðað við framlögð gögn en að öðru leyti vísast til útskrifar skipulagsstjóra.


161. fundur 2007
Háagerði 87, (fsp) hækka viðbyggingu
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. apríl 2007 þar sem spurt er hvort leyft yrði að færa til núverandi kvist á suðurhlið, byggja nýjan kvist á norðurhlið og hækka viðbyggingu sem fyrir er við einbýlishúsið á lóðinni nr. 87 við Háagerði, samkvæmt teikninum Jóns E. Guðmundssonar dags. 3. janúar 2007.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar hún berst.

440. fundur 2007
Háagerði 87, (fsp) hækka viðbyggingu
Spurt er hvort leyft yrði að færa til núverandi kvist á suðurhlið, byggja nýjan kvist á norðurhlið og hækka viðbyggingu sem fyrir er við einbýlishúsið á lóðinni nr. 87 við Háagerði.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.