Kringlan 4-12
Verknúmer : BN033654
389. fundur 2006
Kringlan 4-12, einingar 130 og 132 br.
Sótt er um leyfi til þess að færa skil milli eininga 130 og 132 og breyta opnun einingar 132 að sameiginlegum verslunargangi 1. hæðar Kringlunnar á lóð nr. 4-12 við Kringluna.
Bréf varðandi brunavarnir dags. 21. mars 2006 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.