Sóltún 2

Verknúmer : BN033166

378. fundur 2006
Sóltún 2, lóðamarkabreyting
Lögð fram tillaga Framkvæmdasviðs, landupplýsingadeildar, dags. 21. desember 2005, að breytingu á lóðarmörkum lóðarinnar nr. 2 við Sóltún.
Lóðin er 10440 ferm., sbr. lóðarleigusamning A-025971/01, dags. 21. desember 2001.
Tekið af lóðinni, sbr. yfirlýsingu A-025780/2002, 52 ferm.
Bætt við lóðina (Sóltún 4) 4713 ferm.
Lóðin verður 15101 ferm.
Lóðin verður tölusett nr. 2-4 við Sóltún.
Sjá samþykkt skipulagsráðs 26. janúar 2005 og samþykkt borgarráðs 3. febrúar 2005.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.