Kringlan 4-12

Verknúmer : BN033051

377. fundur 2005
Kringlan 4-12, S 112-2, 112-3, 112-4
Sótt er um leyfi til að breyta geymslum, á fyrstu hæð Kringlunnar á lóðinni nr. 4-12 við Kringluna, í snyrtingar (S-112-2 og S-112-3) og ræstiaðstöðu (S 112-3). Jafnframt verði EICS120-hurð að miðrými fjarlægð og komið fyrir minniháttar innréttingum á gangi framan við snyrtingar.
Erindinu fylgir yfirlýsing brunahönnuðar dags. 12. des. 2005.
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.